BÓKF3SS05
Bókfærsla, sjóðstreymi og skattauppgjör
- Einingar5
Nemendur læra að gera upp bókhald út frá ófullkomnum upplýsingum og um sameiningu fyrirtækja. Nemendur læra að setja upp sjóðstreymi og taka tillit til skattareglna í uppgjöri. Einnig læra þeir að meta gengi hlutabréfa. Kennslan byggist á innlögnum, umræðum, dæmatímum…
- Nemendur læra að gera upp bókhald út frá ófullkomnum upplýsingum og um sameiningu fyrirtækja.
- Nemendur læra að setja upp sjóðstreymi og taka tillit til skattareglna í uppgjöri.
- Einnig læra þeir að meta gengi hlutabréfa. Kennslan byggist á innlögnum, umræðum, dæmatímum og verkefnavinnu.
- Lögð er áhersla á að nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum og geri sér grein fyrir eigin ábyrgð.
- Nemendur vinna mest sjálfstætt, einir eða í hóp.
Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, skyndiprófum, verkefnum og ástundun nemandans á önninni. Skriflega lokaprófið samanstendur af skattalegu uppgjör, sjóðstreymi, sameiningu fyrirtækja og ársreikningi út frá takmörkuðum upplýsingum.
Skattareglum.
Reglum um framsetningu og innihald ársreikninga.
Verðmætamati fyrirtækja.
Framsetningu sjóðstreymis.
Sameiningu fyrirtækja.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Færa uppgjör með flóknum athugasemdum.
Taka tillit til skattalegra ráðstafana.
Semja ársreikninga út frá takmörkuðum upplýsingum.
Sameina og slíta fyrirtækjum.
Reikna út kennitölur út frá ársreikningum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Færa bókhald og gera upp reikninga með flóknum athugasemdum.
Semja ársreikninga þar sem tekið er tillit til skattalegra ráðstafana.
Setja fram og lesa úr sjóðstreymi.
Lesa og skilgreina ársreikninga ásamt kennitölum.
Skilja viðskiptasiðfræði.
Vinna sjálfstætt og heiðarlega.
Gera sér grein fyrir ábyrgðinni sem hvílir á bókhaldara.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: