ALÞJ2IA05
Alþjóðafræði II: Evrópufræði
- Einingar5
Í áfanganum er fjallað um alþjóðakerfið og valdir þættir þess skoðaðir. Fjallað er um þróun evrópskrar samvinnu á síðustu áratugum og þátttöku Íslands á því sviði. Áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu. Nemendur taka…
- Í áfanganum er fjallað um alþjóðakerfið og valdir þættir þess skoðaðir.
- Fjallað er um þróun evrópskrar samvinnu á síðustu áratugum og þátttöku Íslands á því sviði.
- Áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu.
- Nemendur taka sjálfstæða afstöðu til námsefnisins í margvíslegri verkefnavinnu.
- Gert er ráð fyrir að nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og vinnu.
Grunnskólapróf
Hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum greinarinnar.
Þýðingu greinar fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun.
Réttindum og skyldum í alþjóðasamfélaginu og takmörkunum þeirra.
Helstu alþjóðastofnunum og -samtökum, sögu þeirra og tilgangi.
Þróun og sögu evrópsks samstarfs og þátttöku Íslendinga í því.
Réttindi og skyldur sem fylgja þátttöku Íslands í evrópsku samstarfi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt.
Vinna á skilvirkan hátt, sýna frumkvæði og samvinnu við nám og störf.
Verja og rökstyðja afstöðu sína.
Taka þátt í umræðu og greina samfélagsleg málefni á gagnrýninn hátt.
Beita kenningum á viðfangsefni greinar og við lausn hagnýtra verkefna.
Beita upplýsingatækni við þekkingarleit.
Vinna með nemendum frá öðrum löndum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Taka þátt í málefnalegum umræðum.
Rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt.
Útskýra viðhorf fólks á ýmsum stöðum og tímum.
Greina áhrif umhverfis, sögu og menningar á stöðu ríkja í alþjóðasamfélaginu.
Sýna frumkvæði í verkum sínum og samskiptum.
Að draga rökstuddar ályktanir um evrópska samvinnu.
Að stunda samskipti við og vinna með nemendum frá öðrum Evrópulöndum.
Auka framtíðarmöguleika sína í áframhaldandi námi eða starfi og daglegum viðfangsefnum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: