Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Birgðastjórnun
Farið er í grunnatriði innkaupa áætlana og birgðastýringu. Farið er í einfalda útreikninga á heppilegasta innkaupamagni og greiningu á lagerhaldi. Einnig er farið í skipulagningu lagerhalds. Þá er kynnt hvernig birgðabókhald virkar og nemendur fá æfingu í að færa birgðir…
Farið er í grunnatriði innkaupa áætlana og birgðastýringu. Farið er í einfalda útreikninga á heppilegasta innkaupamagni og greiningu á lagerhaldi. Einnig er farið í skipulagningu lagerhalds. Þá er kynnt hvernig birgðabókhald virkar og nemendur fá æfingu í að færa birgðir inn og út úr bókhaldinu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hvernig skipulag á lagerhaldi er uppsett og helstu verkferla í vöruhúsum.
Þýðingu á stjórnun innkaupa og birgðahalds á efnahagsreikning fyrirtækisins.
Mikilvægi nákvæmrar skráningar á vöru sem er afhent úr húsið eða skila til baka.
Skráningu birgða og eftirliti með birgðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Greina frávik í birgðahaldi og bregðast með viðeigandi hætti við þeim.
Setja upp einfalt skipulag á lagerhaldi.
Reikna út heppilegasta innkaupamagn.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Merkja vörur með réttum upplýsingum þannig að birgðastaða sé skýr.
Uppfæra birgðabókhald í samræmi við vöruafgreiðslu og vöruskil.