BÓKF1BR05
Bókfærsla og rekstrarhagfræði
- Einingar5
Bókfærsluhluti áfangans byggist á verkefnavinnu nemenda, dæmatímum og fyrirlestrum. Til að byrja með vinna nemendur verkefnin í dagbók til að ná undirstöðuatriðum bókfærslunnar og temja sér rétt vinnubrögð. Kennd er gerð einfalds efnahags- og rekstrarreiknings og farið yfir gerð reikningsjafnaðar…
- Bókfærsluhluti áfangans byggist á verkefnavinnu nemenda, dæmatímum og fyrirlestrum.
- Til að byrja með vinna nemendur verkefnin í dagbók til að ná undirstöðuatriðum bókfærslunnar og temja sér rétt vinnubrögð.
- Kennd er gerð einfalds efnahags- og rekstrarreiknings og farið yfir gerð reikningsjafnaðar með einföldum athugasemdum.
- Öll verkefnin unnin í Excel. Kennslustundirnar eru að mestu verklegar, þ.e. að nemendur vinna sjálfstætt og í hópum.
- Lögð er áhersla á að nemendur skilji hugsunina á bak við tvíhliða bókhald, læri að færa inn dagbókarfærslur viðkomandi tímabils og geti svo gert upp viðkomandi tímabil.
- Rekstrarhagfræðihluti áfangans byggist einnig mikið á verkefnavinnu en líka fyrirlestrum og umræðum.
- Lögð er áhersla á útreikning og túlkun efnisins.
- Í áfanganum er nemendum gerð grein fyrir mismunandi tegundum kostnaðar, tekjum og afkomu, útreikningar á núllpunkti og gerð einfaldra fjárhagsáætlana.
Námsmat áfangans byggir á skilaverkefnum nemenda, skyndiprófum og lokaprófi.
Grunnhugtökum bókfærslu.
Helstu kostnaðar- og tekju hugtökum rekstrarhagfræðinnar.
Einfaldri áætlanagerð.
Hvernig tvíhliða bókhald virkar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Setja fram tvíhliða bókhald.
Færa einfalt uppgjör.
Setja fram einfaldan efnahags- og rekstrarreikning.
Reikna út kostnað, tekjur, afkomu og núllpunkt.
Gera einfaldar rekstrar- og greiðsluáætlanir auk áætlaðan efnahagsreikning.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Gera upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil.
Stilla upp prófjöfnuði.
Gera einfaldar lokafærslur fyrir uppgjör.
Útfæra einfaldar launafærslur.
Búa yfir skilningi á mismunandi kostnaði fyrirtækja.
Skilja samhengi í rekstri fyrirtækja og mikilvægi áætlanagerðar.
Skilja og túlka tölulegar upplýsingar sem varða rekstur fyrirtækja.
Gera sér grein fyrir verðmætasköpun fyrirtækja.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: