Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Bókfærsla, sjóðstreymi og skattauppgjör
Nemendur læra að gera upp bókhald út frá takmörkuðum upplýsingum og um sameiningu fyrirtækja. Nemendur læra að setja upp sjóðstreymi og taka tillit til skattareglna í uppgjöri. Einnig læra þeir að meta gengi hlutabréfa. Kennslan byggist á innlögnum, umræðum, dæmatímum…
Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, skyndiprófum, verkefnum og ástundun nemandans á önninni. Skriflega lokaprófið samanstendur af skattalegu uppgjör, sjóðstreymi, sameiningu fyrirtækja og ársreikningi út frá takmörkuðum upplýsingum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Skattareglum.
Raungengi og sameiningu fyrirtækja.
Framsetningu sjóðstreymis.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Færa færslur og uppgjör með takmörkuðum upplýsingum.
Taka tillit til skattalegra ráðstafana.
Endurskipuleggja fjárhagslegar eignir.
Sameina fyrirtæki.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Færa bókhald og gera upp reikninga með flóknum athugasemdum.
Semja og ganga frá uppgjöri þar sem tekið er tillit til skattalegra ráðstafana.
Setja fram og lesa úr sjóðstreymi.
Vinna sjálfstætt.
Gera sér grein fyrir ábyrgðinni á mikilvægi þess að halda rétt bókhald.