Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Mál og menning
Um bekkjarkennslu er að ræða og kennslan fer að mestu leyti fram á dönsku. Lögð er áhersla á að nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum, geri sér grein fyrir eigin ábyrgð og geti fylgst með framvindu í námi sínu og metið…
Um símatsáfanga er að ræða þar sem allir þættir tungumálsins eru kannaðir á önninni. Námsmatið samanstendur bæði af mati kennara og nemenda í formi jafningjamats og sjálfsmats.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.
Mannlífi, menningu og siðum í Danmörku og samskiptavenjum þar.
Grundvallarþáttum danskrar málfræði.
Hvernig þekking á dönsku getur nýst á öðrum Norðurlöndum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota málið nokkuð örugglega bæði skriflega og munnlega til þess að miðla og afla sér þekkingar og reynslu sem og í daglegum samskiptum.
Geta skilið allvel talað og ritað mál um daglegt líf og efni sem hann þekkir.
Beita mismunandi lestraraðferðum og helstu málnotkunarreglum.
Auka kunnáttu sína og færni í málinu og gera sér ljósa eigin ábyrgð og mikilvægi frumkvæðis og eigin vinnu.
Vinna einn eða með öðrum að lausn heildstæðra verkefna þar sem reynir á alla þætti málnotkunar og alhliða færni í málinu, bæði til þess að afla nýrrar þekkingar og til að miðla henni á skýran og skipulegan hátt.
Nýta sér upplýsingatækni og hjálpargögn á markvissan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Skilja ritað (B1) og talað mál (A2) við mismunandi aðstæður sem tengjast efni sem hann þekkir fyrir.
Afla sér frekari upplýsinga, greina aðalatriði þeirra og hagnýta sér.
Lesa sér til ánægju og þroska skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína.
Takast á við margvíslegar aðstæður í almennum samskiptum, beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum í daglegu lífi.
Miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, bæði skriflega og munnlega.
Útskýra og rökstyðja ákvarðanir og fyrirætlanir.
Taka þátt í samræðum um efni sem hann þekkir fyrir.
Nota ýmis hjálpargögn s.s. orðabækur, málnotkunarbækur, upplýsingatækni.
Finna löngun til að viðhalda kunnáttu varðandi danska menningu og tungu.
Þróa með sér aga, metnað og ábyrgð í vinnubrögðum t.d. í gegnum jafningja- og sjálfsmat.