Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Líffræðileg eðlisfræði
Efni áfangans eru grunnþættir eðlisfræði sem nauðsynlegir eru til að nemendur á líffræðisviði geti skilið starfsemi líffæra og lífvera. Kennslan fer fram með innlögn í formi fyrirlestra og verkefnavinnu þar sem nemendur vinna sem einstaklingar eða í hópum. Verklegar æfingar…
Lokapróf og vinnueinkunn sem er samsett úr verkefnavinnu, verklegum æfingum og tveimur hlutaprófum.
EÐLI1DL05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Eðlisfræðilegum undirstöðuatriðum líffæra og lífvera.
Varma, hitastigi, eðlisvarma, kælingu, hitun, fasaskiptum, flæði vökva og jöfnum.
Bernoullis og Poiseuilles, sveimi agna (diffusion).
Grunnhugtökum í rafmagns- og segulfræði sem tengjast starfsemi lífvera, sér í lagi lögmáli Ohms.
Rafspennu, rafstöðuorku og rafsviði yfir himnur og færslu jóna gegnum frumuhimnur, himnuspennu.
Afpólun og rýmd í taugafrumum.
Bylgjuhreyfingu, ljósbylgjum, hljóðbylgjum.
Lögmáli Weber-Fechner.
Víxlverkun ljóss og efnis.
Geislavirkni og áhrifum geislunar á lífverur, kjarnorku og uppruna frumefnanna.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Tengja starfsemi lífvera við þau eðlisfræðilegu grunnlögmál sem liggja til grundvallar.
Setja upp og vinna úr einföldum dæmum og verkefnum sem tengjast lífeðlisfræðilegum þáttum.
Leita sér þekkingar í prentuðum gögnum og netmiðlum.
Meta út frá eðlisfræðilegum forsendum hvort tilteknar fullyrðingar eða tilgátur séu raunhæfar eða ekki.
Meta áreiðanleika upplýsinga.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Skilja víxlverkun lífvera við umhverfi sitt með tilliti til eðlisfræðilegra þátta – varma, skynjunar, geislunar o.þ.h. – og tengsl ýmissa grunnþátta í starfsemi lífvera við einföld eðlisfræðileg lögmál.
Skilja ýmis valin atriði á borð við skölunarlögmál (hvaða þættir takmarka stærð lífvera og lögun).
Lesa sér til gagns vísindatexta sem skrifaðir eru fyrir hinn almenna upplýsta lesanda.