Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Verkefnaeðlisfræði
Áfanginn tekur mið af heimildaöflun og rannsóknarvinnu. Lögð er áhersla á að nemandi samþætti þá þekkingu og færni sem hann hefur tileinkað sér í EÐLI1DL05, EÐLI2BY05, EÐLI3RA05 og JARÐ2JE05 með sérstakri áherslu á eðlisfræði. Meginmarkmið áfangans er að brjóta niður…
Dagbók sem er haldin yfir önnina, heimildaritgerð sem er unnin út frá áhugasviði nemenda, rannsóknarskýrsla sem byggir á eigin rannsókn/athugun nemenda, fyrirlestur um rannsóknina/athugunina og veggspjald þar sem verkefnið er kynnt á Vísindaráðstefnu skólans. Einkunn áfangans byggir á símati.
EÐLI1DL05, EÐLI2BY05, EÐLI3RA05 og JARÐ2JE05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Sérhæfðum sviðum eðlisfræðinnar/jarðeðlisfræðinnar.
Sérhæfðum orðaforða á íslenskri og enskri tungu sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám.
Sérhæfðri rannsóknarvinnu fræðigreinarinnar eðlisfræði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Gera raunhæfar áætlanir um skrif heimildaritgerða og rannsóknir.
Nýta sér rannsóknartæki og hugbúnað í tengslum við sérhæfð verkefni.
Nýta sér upplýsinga- og samskiptatækni.
Safna upplýsingum, vinna úr þeim og miðla til annarra.
Setja fram og túlka myndir og gröf.
Skipuleggja rannsóknarverkefni/athugun, framkvæma og útskýra út frá takmörkuðum fyrirmælum.
Hagnýta sér tengsl milli stærðfræði og náttúru- og raungreina til úrlausnar verkefna.
Tjá skoðanir sínar og verkefni á skýran hátt, draga ályktanir og rökstyðja í fræðilegu samhengi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Auka skilning sinn á eðlisfræðilegum viðfangsefnum.
Nýta sér þekkingu á meðferð heimilda.
Beita mismunandi rannsóknaraðferðum og túlka niðurstöður.
Yfirfæra og beita þekkingu úr einum efnisþætti eða fleirum við lausn verkefna í öðrum efnisþáttum og greina samhengi þar á milli.
Útskýra, greina, draga ályktun af og miðla niðurstöðum rannsóknar.
Taka þátt í og stjórna upplýstri umræðu um málefni er snerta vísindi, tækni og samfélag.
Taka þátt í vísindaráðstefnu þar sem skipst er á skoðunum eftir kynningar á rannsóknarverkefnum.
Taka ábyrgð á eigin námi.