Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Skriflegt lokapróf í lok annar gildir 70%. Áfangapróf, heimaverkefni, verklegt o.fl. gilda 30% Til að vinnueinkunn reiknist inn í lokaeinkunn þarf nemandi að hafa leyst 45% lokaprófsins rétt.
Að kynna nemendum undirstöðuatriði efnafræði sem þátt í heimsmynd nútímans og veita grunnþekkingu fyrir frekara nám á háskólastigi.
Hefðbundin kennsla fer fram í kennslutímum, þar sem hvatt er til umræðu og fyrirspurna eftir því sem tilefni gefast til. Mikil áhersla er lögð á dæmareikning. Auk þessar eru verklegar æfingar í raungreinastofu. Í raungreinastofu er tölvubúnaður sem gerir nemendum kleift að hefja skýrslugerð og útreikninga jafnframt tilrauninni. Lögð er áhersla á að nemendur noti tölvuforrit við úrvinnslu niðurstaðna. Nemendum er ætlað að tileinka sér og öðlast skilning á efni kennslutexta og viðbótarefni sem fram kemur í kennslustundum. Einnig eiga þeir að ná tökum á skýrslugerðarformi og tölfræðilegri úrvinnslu gagna í verklegum tilraunum.
Efnajafnvægi: jafnvægisstaða, jafnvægislögmálið, jafnvægisfasti, lofttegundir og blönduð kerfi, þættir sem hafa áhrif á jafnvægi. Sölt í vatnslausn, leysni og leysnimargfeldi, áhrif sameiginlegra jóna á leysni, botnfallsreikningar. Sýrur og basar, sjálfsjónun vatns, jafnvægisfastinn Kv, rammar og daufar sýrur, rammir og daufir basar, pH, fjölróteindasýrur, dúalausnir. Oxun og afoxun, oxunartölur, stilling oxunar-afoxunarjafna. Rafefnafræði: raflausnir, rafhlöður, spennuröð, rafgreining, staðalspenna, óreiða, annað lögmál varmafræðinnar, þriðja lögmál varmafræðinnar, sjálfgeng efnahvörf, Gibbs frjáls orka.