Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Efnafræði, lögun sameinda og tengi
Hefðbundin kennsla fer fram í kennslutímum, þar sem hvatt er til umræðu og fyrirspurna eftir því sem tilefni gefast til. Mikil áhersla er lögð á dæmareikning. Auk þessa eru verklegar æfingar í raungreinastofu. Í raungreinastofu er tölvubúnaður sem gerir nemendum…
Lokapróf, annarpróf, verklegar æfingar, heimadæmi.
EFNA2AE05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Skammtatölum, lögun og legu svigrúma, rafeindaskipan frumefna í grunnástandi.
Lotubundnum eiginleikum frumefna.
Lewis-myndum.
Lögun og skautun sameinda, VSEPR byggingum sameinda, svigrúmablöndun atómsvigrúma, sameindasvigrúmum (MO) tvíatóma sameinda.
Vökvum og föstum efnum: jónaefnum og málmum, veikum efnatengjum, hamskiptum.
Fasalínuritum.
Magnbundnum eiginleikum lausna.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Rita rafeindaskipan frumefna í grunnástandi.
Álykta um hlutfallslega stærð atóma og atómjóna.
Álykta um eiginleika frumefna út frá staðsetningu þeirra í lotukerfinu.
Rita Lewispunktaformúlur efna.
Reikna hvarfavarma út frá tengjaentalpíu.
Spá fyrir um lögun og skautun sameinda út frá VSEPR líkaninu og teikna þær í þrívídd.
Ákvarða svigrúmablöndun atóma í sameind.
Teikna MO myndir.
Útskýra eiginleika fastra efna og vökva út frá kröftum milli sameinda.
Túlka fasalínurit.
Framkvæma einfaldar verklegar æfingar í tilraunastofu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Beita skipulegum aðferðum við úrlausn dæma.
Túlka orðadæmi og klæða þau í stærðfræðilegan búning.
Setja upp jöfnur og leysa þær með viðeigandi mælieiningum.
Leggja mat á úrlausnir sínar og álykta um hvort þær standist.
Beita gagnrýninni hugsun og sýn innsæi og útsjónarsemi við lausnir verkefna.
Skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær í rituðu máli.
Þróa skilning sinn á efnisheiminum.
Átta sig á hlutverki efnatengja í heiminum.
Víkka skilning sinn á því hvernig lögun efna hefur áhrif á efnahvörf og efniseiginleika.