Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Málnotkun, bókmenntir og viðskipti
Áhersla er lögð á að byggja upp og auka við hagnýtan orðaforða. Lesnir eru textar um margvísleg málefni, m.a. viðskipti og læra nemendur að skrifa verslunarbréf. Skáldsaga er lesin og lesnar eru smásögur sem unnið er með á fjölbreyttan hátt.…
Námsmat er byggt á skriflegum og munnlegum einstaklings- og hópverkefnum sem unnin eru yfir önnina, ástundun, skyndiprófum og lokaprófi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.
Hugtökum sem tengjast verslun og viðskiptum.
Helstu hefðum um uppsetningu og skipulag verslunarbréfa.
Helstu hefðum um ritun og flutning ræða.
Uppbyggingu smásagna.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa margs konar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga.
Skilja mál sem talað er við mismunandi aðstæður.
Taka virkan þátt í samræðum.
Skrifa bæði formlega og óformlega texta, m.a. verslunarbréf.
Flytja ræðu á skipulagðan hátt.
Nýta sér hjálpargögn, svo sem orðabækur, leiðréttingarforrit, tölvu- og upplýsingatækni eins og kostur er.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni.
Tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt.
Lesa á milli línanna, átta sig á dýpri merkingu í texta.
Greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í smásögum og skáldsögu.
Taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara gagnrökum.
Eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum.
Skrifa texta um efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín.
Geta flutt vel uppbyggða ræðu, dregið fram aðalatriði og rökstutt mál sitt með dæmum og brugðist við fyrirspurnum.