Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Orðaforði og málnotkun
Nemendur lesa almenna texta um margvísleg efni og orð og orðatiltæki eru skýrð á ensku og/eða þýdd á íslensku. Einnig eru kynnt hugtök sem tengjast verslun og viðskiptum. Verkefni eru unnin til að þjálfa nemendur í notkun á nýjum orðaforða…
Námsmat er byggt á vinnu nemenda yfir önnina, skyndiprófum og öðrum verkefnum, ásamt lokaprófi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.
Hugtökum er tengjast verslun og viðskiptum.
Mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað.
Helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa margs konar texta og beita þeim lestraraðferðum sem eiga við.
Skilja mál sem talað er við mismunandi aðstæður.
Skrifa margs konar texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu.
Taka virkan þátt í samræðum og segja frá á skýran hátt með því að beita viðeigandi orðaforða og málvenjum.
Nýta sér hjálpargögn, svo sem orðabækur, leiðréttingarforrit, tölvu- og upplýsingatækni eins og kostur er.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni.
Tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt.
Lesa á milli línanna, átta sig á dýpri merkingu í texta.
Eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum.
Tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og beita tungumálinu af tiltölulega mikilli nákvæmni við margs konar aðstæður.
Skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín.
Skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig, til dæmis að skrifa vel uppbyggða ritgerð.
Nýta upplýsingatækni til upplýsingaöflunar og þjálfunar í notkun á tungumálinu.
Vinna með öðrum og stunda samvinnunám.