Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Breskt samfélag og menning
Nemendur fá innsýn í breska menningu með því að skoða sögu, menningu og stjórnskipun í Bretlandi. Nemendur lesa eitt leikrit á ensku, nokkrar smásögur og aðrar greinar sem tengjast breskri menningu. Námið miðar að því að nemendur þjálfist í enskri…
Nemendur fá eina einkunn í lok áfangans sem samanstendur af ástundun og virkni, skyndiprófum/verkefnum og skriflegu lokaprófi.
ENSK3SV05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Sögu, menningu og stjórnskipun í Bretlandi.
Völdum breskum bókmenntum.
Víðtækum sem og sértækum orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér lesefni þessa áfanga svo og í áframhaldandi námi.
Hefðum sem eiga við um talað og ritað mál.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa og skilja fagtexta jafnt sem almenna texta um hinar ýmsu hliðar bresks mannlífs.
Skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram eða töluð með mismunandi framburði.
Nýta tungumálið í almennum samræðum.
Tjá sig um margvísleg málefni þar sem bæði er lögð áhersla á færni í tungumálinu svo og öryggi í því að koma fram.
Rita fræðilega og persónulega texta samkvæmt hæfniviðmiðum þrepsins.
Leita upplýsinga og vinna heimildavinnu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið fræðilegt efni sem tengist breskri menningu og samfélagi.
Greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta, s.s. í bókmenntaverkum og öðrum textum, skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram eða töluð með mismunandi framburði.
Geta lagt gagnrýnið mat á texta.
Hagnýta sér fræðitexta, myndefni og umræður um efni sem tengist Bretlandi.
Átta sig á mismunandi málsniði og stíl eftir því hvort notað er talað mál eða ritað.
Taka fullan þátt í umræðum og rökræðum sem tengjast viðfangsefnum áfangans.
Flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð með eða án glæra, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt og bregðast við fyrirspurnum.
Skrifa vel uppbyggðar efnisgreinar svo og ritgerðir samkvæmt þeim rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag.
Vinna rannsóknarverkefni úr ýmsum upplýsingaveitum þar sem heimilda er getið á réttan hátt.