Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Nýsköpun, bókmenntir, listir
Námið miðar að því að nemendur auki færni sína í enskri tungu og bæti orðaforða sinn tengdan nýsköpun og listum. Nemendur lesa greinar og bókmenntatexta auk þess sem þeir afla sér efnis á netinu. Þeir eru þjálfaðir í að tjá…
Námsmat er í formi símats.
ENSK3ME05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Enskum orðaforða og hugtökum sem tengjast nýsköpun og listum.
Orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi.
Mismunandi málsniði enskrar tungu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa sér til gagns greinar um efni tengd nýsköpun og listum.
Skilja vel sérhæfða texta á sviði nýsköpunar og lista.
Skilja talað mál sem fjallar um nýsköpun og listir, til dæmis fyrirlestra.
Taka virkan þátt í samræðum um nýsköpun og listir.
Tjá sig í ræðu og riti, bæði formlega og óformlega, um efni sem tengist nýsköpun og listum sem hann hefur kynnt sér og undirbúið.
Virða skoðanir annarra og leysa verkefni í samvinnu við aðra.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Tileinka sér efni ritaðs texta sem tengist nýsköpun og listum og nýta á mismunandi hátt.
Skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna sem fjalla um nýsköpun og listir.
Leggja gagnrýnið mat á texta og meta heimildir á gagnrýninn hátt.
Beita málinu til þess að geta tekið fullan þátt í rökræðum þar sem fjallað er um nýsköpun og listir.
Semja og flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, geta dregið fram aðalatriði og rökstutt mál sitt með dæmum og brugðist við fyrirspurnum.
Nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við sköpun eða flutning verka sinna.
Nýta sér upplýsingatækni til fróðleiks og rannsókna.
Skrifa frumsaminn texta á ensku.
Nota hugarflugið og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli.
Sýna frumkvæði, ábyrgð og umburðarlyndi og beita gagnrýninni hugsun.
Virða skoðanir annarra og geta leyst verkefni í samvinnu við aðra.
Tileinka sér fjölbreytta hugsun við lausn mála, fræðilega, listræna og viðskiptalega.