FÉLA2ME05
Menningarfræði - evrópsk menning
- Einingar5
Í áfanganum er fjallað um menningu frá mismunandi sjónarhorni ólíkra félagsgreina á menningu; í þessum áfanga er áherslan einkum á alþjóðlega menningu og birtingarmyndir hennar, með áherslu á viðskipti. Einnig er farið í grunnatriði mannfræðinnar sem fræðigreinar. Áhersla er lögð…
- Í áfanganum er fjallað um menningu frá mismunandi sjónarhorni ólíkra félagsgreina á menningu; í þessum áfanga er áherslan einkum á alþjóðlega menningu og birtingarmyndir hennar, með áherslu á viðskipti.
- Einnig er farið í grunnatriði mannfræðinnar sem fræðigreinar.
- Áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu.
- Verkefnin felast í skriflegum verkefnum þar sem tekin er sjálfstæð afstaða til fyrirliggjandi námsefnis og hóp- og paraframsöguverkefnum.
- Gert er ráð fyrir að nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu.
Grunnskólapróf
Hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum helstu félagsgreina.
Mismunandi sjónarhorn ólíkra félagsgreina á menningu.
Orsökum mismunandi menningar við ólíkar aðstæður.
Þýðingu menningar og mismunandi birtingarmynda hennar.
Þýðingu menningar- og mannfræði fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun.
Hugmyndum og umræðum um gildi mismunandi menningar.
Helstu sérkennum viðskiptamenningar í ólíkum menningarheimum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt.
Temja sér skilvirk vinnubrögð, frumkvæði og samvinnu við nám og störf.
Verja rökstudda afstöðu sína.
Taka þátt í umræðu og greina samfélagsleg málefni á gagnrýninn hátt.
Beita kenningum á viðfangsefni greinar og við lausn hagnýtra verkefna.
Starfa og stunda viðskipti í ólíkum menningarheimum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Taka þátt í málefnalegum umræðum.
Rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt.
Útskýra menningu og viðhorf fólks á ýmsum stöðum og tímum.
Efla siðferðilega dómgreind sína.
Greina upplýsingar og efni fjölmiðla um menningu á gagnrýninn hátt.
Greina áhrif umhverfis og sögu á menningu.
Sýna frumkvæði í verkum sínum og samskiptum.
Auka framtíðarmöguleika sína í áframhaldandi námi eða starfi og daglegum viðfangsefnum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: