FÉLA2MK05
Félagsvísindi 2: Menningar-og kynjafræði
- Einingar5
Áfanginn er tvískiptur, annars vegar er fjallað um menningu frá sjónarhorni ólíkra félagsgreina, áherslan er einkum á evrópska og íslenska menningu og birtingarmyndir hennar með lestri greina og bóka. Hins vegar er kafað dýpra í ýmis hugtök kynja- og jafnréttisfræða…
- Áfanginn er tvískiptur, annars vegar er fjallað um menningu frá sjónarhorni ólíkra félagsgreina, áherslan er einkum á evrópska og íslenska menningu og birtingarmyndir hennar með lestri greina og bóka. Hins vegar er kafað dýpra í ýmis hugtök kynja- og jafnréttisfræða sem nemendur fóru í á 1. ári; staða kynjanna í samfélaginu greind og skoðuð. Birtingarmyndir kynjamisréttis og annars félagslegs misréttis eru ræddar og áhrif þess á persónulega hamingju og samfélagslega velsæld sett í samhengi. Meðal umfjöllunarefna eru vændi, kynhlutverk, klám, ofbeldi, mansal, staðalmyndir og fjölmiðlar.
- Áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu.
- Verkefnin felast í skriflegum verkefnum þar sem tekin er sjálfstæð afstaða til fyrirliggjandi námsefnis og hóp- og paraframsöguverkefnum og nemendur vinna jafnt og þétt að sameiginlegri fréttaveitu alla önnina.
- Gert er ráð fyrir að nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu.
FÉLA2ME05.
Hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum helstu félagsgreina.
Mismunandi sjónarhorn ólíkra félagsgreina á menningu.
Orsökum mismunandi menningar við ólíkar aðstæður.
Þýðingu menningar og mismunandi birtingarmynda hennar.
Þýðingu menningarfræði fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun.
Hugmyndum og umræðum um gildi mismunandi menningar.
Helstu sérkennum íslenskrar menningar í samanburði við evrópska menningu.
Stöðu kynjanna í samfélögum nær og fjær.
Birtingarmyndum misréttis.
Áhrifum fjölmiðla og staðalmynda á sjálfsmynd.
Tengslum kynhlutverka og vinnumarkaðar.
Samhengi félagsmótunar, viðhorfa og væntinga.
Mikilvægi vitundarvakningar á félagslegum vandamálum.
Hugtökum kynjafræðinnar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt.
Temja sér skilvirk vinnubrögð, frumkvæði og samvinnu við nám og störf.
Verja rökstudda afstöðu sína.
Taka þátt í umræðu og greina samfélagsleg málefni á gagnrýninn hátt.
Beita kenningum á viðfangsefni greinar og við lausn hagnýtra verkefna.
Beita upplýsingatækni við þekkingarleit.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Taka þátt í málefnalegum umræðum.
Rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt.
Útskýra menningu og viðhorf fólks á ýmsum stöðum og tímum.
Efla siðferðilega dómgreind sína.
Greina upplýsingar og efni fjölmiðla um menningu á gagnrýninn hátt.
Greina áhrif umhverfis og sögu á menningu.
Sýna frumkvæði í verkum sínum og samskiptum.
Auka framtíðarmöguleika sína í áframhaldandi námi eða starfi og daglegum viðfangsefnum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: