Féla3LV05
Lokaverkefni
- Einingar5
Þessi áfangi er lokaáfangi á Alþjóðabraut og er ætlað að draga saman þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur hafa öðlast í félagsvísindagreinum s.s. alþjóðafræði, stjórnmálafræði, sögu og menningarfræði. Áfanginn er kenndur á síðasta ári og er hugsaður sem samantekt…
- Þessi áfangi er lokaáfangi á Alþjóðabraut og er ætlað að draga saman þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur hafa öðlast í félagsvísindagreinum s.s. alþjóðafræði, stjórnmálafræði, sögu og menningarfræði.
- Áfanginn er kenndur á síðasta ári og er hugsaður sem samantekt á áherslusviðum brautarinnar.
- Hin þverfaglega verkefnavinna sem innt er af hendi af nemendum nær yfir öll færnisvið: lestur, ritun, ræðu og hlustun bæði í gegnum vinnu með námsefni og með margmiðlunartækni.
- Einnig er áhersla á að efla menningarlæsi og heimildavinnu.
- Nemendur þjálfast í annars vegar samstarfi og hins vegar í sjálfstæðum vinnubrögðum.
- Nemendur í þessum áfanga munu fást við tvö stór verkefni. Annars vegar einstaklingsverkefni sem getur verið ritgerð eða skýrsla og hins vegar í formi hópverkefnis þar sem nemendur vinna að einhvers konar þáttargerð.
- Inntak og efni verkefnanna getur verið breytilegt á milli ára.
- Loks munu nemendur kynna vinnu sína á vettvangi skólans eða opinberlega á einhverju formi.
FÉLA2ST05.
Hlutverki samvinnu á jafningja grundvelli í samvinnuverkefnum.
Hlutverki fjölmiðla í lýðræðissamfélagi.
Samfélagsumræðu innanlands sem utan.
Þeim vinnubrögðum sem nemendur mega búast við á háskólastiginu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Nýta upplýsingatækni og margmiðlun.
Frumkvæði til að afla viðmælenda til þáttargerðar.
Gera grein fyrir niðurstöðum verkefna í ræðu og riti.
Beita gagnrýninni hugsun við mat á heimildum.
Að skrifa vandaðan texta og geta tjáð sig á skilmerkilegan hátt.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita sjálfstæðum vinnubrögðum í einstaklings- og hópverkefnum.
Vinna sjálfstæða heimildaritgerð, þ.e. leita heimilda, setja upp heimildaskrá, nota tilvitnanir og gera grein fyrir þeim og vinna úr upplýsingum á gagnrýnan hátt.
Setja saman þátt með þeirri leikni og þekkingu sem aflað hefur verið í náminu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: