Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Tímagildi peninga
Í áfanganum læra nemendur um fjárfestingar og þær aðferðir sem beitt er til þess að meta hagkvæmni þeirra. Þá er farið í helstu tegundir verðbréfa, skuldabréfa og hlutabréfa og virðingu þeirra. Kennsluhættir eru í formi fyrirlestra, umræðutíma, dæmatíma og verkefnavinnu.…
Í lok áfangans er skriflegt lokapróf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, verkefnum og ástundun nemandans á önninni.
HAGF1ÞF05 .
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mismunandi sparnaðarleiðum einstaklinga
Tímagildi fjármagns og grundvallar þýðingu þess í fjármálum
Vísitölum, hlutverki þeirra og notkun
Ávöxtunarkröfu og fjármagnskostnaði sem og áhrifaþætti þessara fjármálhugtaka
Helstu markaðsverðbréfum á íslenskum verðbréfamarkaði og hlutverk kauphalla í verðbréfaviðskiptum
Helstu tegundum skuldabréfa
Mikilvægi fjárfestinga í þjóðfélaginu og hvernig á að meta hagkvæmni þeirra
Mismunandi sparnaðarleiðum einstaklinga.
Tímagildi fjármagns og grundvallar þýðingu þess í fjármálum.
Vísitölum, hlutverki þeirra og notkun.
Ávöxtunarkröfu og fjármagnskostnaði sem og áhrifaþætti þessara fjármálhugtaka.
Helstu markaðsverðbréfum á íslenskum verðbréfamarkaði og hlutverk kauphalla í verðbréfaviðskiptum.
Helstu tegundum skuldabréfa.
Mikilvægi fjárfestinga í þjóðfélaginu og hvernig á að meta hagkvæmni þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Reikna arðsemi mismunandi fjárfestingavalkosta.
Reikna markaðsverðmæti/gengi mismunandi tegunda skuldabréfa út frá ávöxtunarkröfu markaðarins.
Reikna virði hlutabréfa út frá sjóðsstreymisaðferð.
Reikna vísitölur og túlka niðurstöður þeirra.
Reikna út helstu kennitölur sem notaðar eru við mat á hlutabréfum og hlutafélögum.
Fást við einfalda útreikninga tengda áhrifum fjármögnunar á virði hlutafélaga.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Hagnýta sér netið til öflunar og túlkunar fjármálalegra upplýsinga.
Fylgjast með verðbréfamarkaðnum og gera sér grein fyrir og meta hvers vegna sveiflur verða á honum og leggja mat á áhrif þeirra.
Fylgjast með umræðunni um fjárfestingar og þýðingu þeirra fyrir hagkerfið.
Skilja og meta hvað liggur að baki arðsemismati tiltekinnar fjárfestingar.
Búa til líkön í Excel til lausnar á fjárfestingavalkostum.
Beita gagnrýnni hugsun í einstaklings- og hópavinnu við lausn fjármálatengdra úrlausnarefna.