Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Franska C
Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa þegar tileinkað sér. Haldið er áfram að þjálfa nemendur jöfnum höndum í öllum færniþáttum tungumálsins í samræmi við evrópska tungumálarammann. Áhersla er lögð á að auka orðaforða og að vinna með…
Nota skal fjölbreytt námsmat sem endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna. Í lok áfangans er skriflegt próf úr efni áfangans sem gildir á móti vinnu og ástundun nemandans á önninni.
FRAN1FB05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans.
Helstu grundvallarþáttum í uppbyggingu franska málkerfisins.
Mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem franska er töluð sem móðurmál og þekki helstu samskiptavenjur.
Að greina og setja fram ýmsar almennar aðstæður í daglegu lífi, menningu og siðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja talað mál um kunnugleg efni, fylgja almennum munnlegum fyrirmælum og greina aðalatriði þegar fjallað er um afmörkuð efni.
Lesa margskonar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt.
Taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á.
Skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir.
Nota upplýsingatækni og önnur hjálpargögn.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Fjalla á nokkuð góðan hátt, munnlega og skriflega um efni sem hann þekkir.
Tjá sig nokkuð vel við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum.
Tileinka sér aðalatriðin í frásögnum í fjöl- og myndmiðlum.
Geta metið eigið vinnuframlag og stöðu.
Fjalla um atburði, ímyndaða og raunverulega.
Unnið skapandi verkefni á sviðum sem hann þekkir vel til.
Vinna að ýmsum verkefnum í samstarfi við samnemendur sína.