Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Franska D, fjórði áfangi
Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér. Haldið er áfram að þjálfa nemendur jöfnum höndum í öllum færniþáttum tungumálsins, hlustun, lestri, tali og ritun í samræmi við evrópska tungumálarammann. Áhersla er lögð á tjáningu…
Beita skal fjölbreyttu námsmati sem endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópska tungumálarammann. Lokaeinkunn byggir á mati á virkni og verkefnaskilum nemenda og á lokaprófi þar sem færniþættirnir lestur, hlustun, tal og ritun eru metnir jöfnum höndum. Dýpri og stærri verkefni skulu liggja til grundvallar vinnueinkunn.
FRAN1FC05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans.
Öllum helstu grundvallarþáttum í uppbyggingu málkerfisins.
Ýmsum almennum aðstæðum í daglegu lífi, menningu og siðum í Frakklandi og í öðrum frönskumælandi löndum.
Útbreiðslu frönskunnar, ásamt ólíkum venjum, siðum, staðháttum og menningu frönskumælandi landa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja allvel talað mál um kunnugleg efni og greina aðalatriði í fjöl- og myndmiðlum þegar fjallað er um afmörkuð málefni.
Lesa margskonar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.
Taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á.
Skrifa styttri samfellda texta um efni sem hann þekkir, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir og nota viðeigandi málfar.
Nota upplýsingatækni og önnur hjálpargögn.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega um efni sem hann þekkir.
Eiga frumkvæði í samræðum og geta tekið þátt í skoðanaskiptum í málefnum sem hann þekkir.
Tileinka sér aðalatriðin í frásögnum í fjöl- og myndmiðlum og átta sig á dýpri merkingu texta.
Fjalla um atburði, ímyndaða og raunverulega á fjölbreyttari hátt en áður bæði munnlega og skriflega.
Lesa sér til upplýsingar og ánægju efni af hæfilegu þyngdarstigi.
Meta eigið vinnuframlag og stöðu sem og samnemenda sinna.
Finna og nýta sér upplýsingar af netinu á frönsku á málefnum sem hann þekkir til.