Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Þjóðhagfræði og fjármálalæsi
Áfanginn er grunnáfangi í hagfræði og fjármálalæsi. Nemendur fá innsýn í helstu hugtök hagfræðinnar, hlutverk hins opinbera, utanríkisviðskipti, viðskiptasiðfræði og önnur tengd málefni. Kennsla er í formi verkefnavinnu, umræðutíma og fyrirlestra. Nemendur fá þjálfun í gagnrýnni hugsun í tengslum við…
Námsmat áfangans er í formi verkefnavinnu og lokaprófs.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu hugtökum hagfræðinnar.
Hvernig hlutverki hins opinbera er háttað.
Mikilvægi utanríkisviðskipta fyrir hagkerfi eins og það íslenska.
Gengi gjaldmiðla og áhrif gengis á viðskipti í víðum skilningi.
Mikilvægi siðferðis í viðskiptum.
Hlutverki kosninga í lýðræðisþjóðfélagi.
Hlutverki sveitarfélaga og verkefnum þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa og skilja fréttir um hagfræðileg málefni.
Afla sér upplýsinga um hagfræðileg málefni.
Reikna og túlka hagstærðir eins og verðbólgu, vexti, hagvöxt og fleira.
Gera sitt eigið skattframtal.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Taka þátt í umræðum um hagfræðileg málefni.
Tekið upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál.
Gera sér grein fyrir hvernig hagkerfi starfar og helstu verkefnum sem aðilar hagkerfisins takast á við.
Vera læs á samfélagið og helstu stoðir hagkerfisins.