HAGF2AH05
Alþjóðahagfræði
- Einingar5
Hugmyndir og kenningar um milliríkjaviðskipti eru reifaðar og fjallað er um alþjóðlega samvinnu, viðskipti á heimsvísu, sérhæfingu og alþjóðavæðingu í efnahagsmálum. Alþjóðlegar stofnanir og samtök sem eru virk á efnahagssviði eru kynnt og skoðuð áhrif þeirra á íslenskt efnahagslíf. Fjallað…
- Hugmyndir og kenningar um milliríkjaviðskipti eru reifaðar og fjallað er um alþjóðlega samvinnu, viðskipti á heimsvísu, sérhæfingu og alþjóðavæðingu í efnahagsmálum.
- Alþjóðlegar stofnanir og samtök sem eru virk á efnahagssviði eru kynnt og skoðuð áhrif þeirra á íslenskt efnahagslíf.
- Fjallað er um alþjóðleg gjaldeyrisviðskipti, hlutverk seðlabanka og áhrif þeirra á hagkerfi.
- Námsefni og umfjöllunarefni er bæði á íslensku og ensku.
- Fer kennslan fram m.a. með fyrirlestrum, samræðum innan bekkjarins og verkefnavinnu.
- Skoðuð eru myndbönd með efni sem varða viðfangsefni áfangans og innihald þeirra rætt.
- Fylgst er með fréttum, sérstaklega þeim sem varða viðfangsefni áfangans.
- Nemendur vinna einnig verkefni sem þeir kynna fyrir samnemendum.
Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, verkefnum og ástundun nemandans á önninni.
HAGF1ÞF05.
Helstu kenningum og hugtökum alþjóðahagfræðinnar.
Hlutverki seðlabanka og hvaða tækjum hann getur beitt til þess að hafa áhrif á efnahagslífið.
Hagkvæmni milliríkjaviðskipta.
Áhrifum af setningu hafta á viðskipti milli landa.
Helstu stofnunum alþjóðasamfélagsins og hlutverkum þeirra.
Því hvernig atburðir í einu hagkerfi hafa áhrif í öðru hagkerfi.
Samskiptum íslenska hagkerfisins við önnur hagkerfi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Geta upp á eigin spýtur nálgast upplýsingar um íslenskt efnahagslíf og efnahagslíf annarra þjóða.
Skilja hvaða afleiðingar inngrip seðlabanka geta haft.
Vinna með gögn og setja þau upp á mismunandi hátt svo þau verði læsilegri.
Túlka og skilja gögn sem sett eru fram.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Túlka og skilja gögn sem sett eru fram.
Tjá sig um hagfræðileg málefni, bæði munnlega og skriflega.
Lesa og skilja umfjöllun um hagfræðileg málefni.
Taka ábyrgð á eigin námi.
Lesa texta um hagfræðileg málefni á erlendu tungumáli.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: