HÖNN3NF05
Nýsköpun og fyrirtækjarekstur
- Einingar5
Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki. Vinna nemenda felst í því að hanna vöru eða þjónustu sem fyrirtækið framleiðir, markaðssetur og selur. Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem…
- Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki.
- Vinna nemenda felst í því að hanna vöru eða þjónustu sem fyrirtækið framleiðir, markaðssetur og selur.
- Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa hlotið í öðrum áföngum sínum svo sem viðskiptagreinum og list- og hönnunargreinum.
- Unnið er með hugtakið frumkvöðull og hvað í því felst. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og ábyrgð þeirra á eigin námi.
Áfanginn er símatsáfangi þar sem unnið er að hönnun vörunnar og rekstri fyrirtækisins alla önnina.
Grunnþekking í viðskiptagreinum, stafrænni hönnun og listgreinum.
Helstu hugtökum í fyrirtækjarekstri.
Gerð viðskiptaáætlana.
Gerð einfaldra rekstrarreikninga.
Gerð einfaldra efnahagsreikninga.
Hugtökunum frumkvöðull og nýsköpun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Taka ákvarðanir.
Greina þarfir fyrir vöru og þjónustu.
Gera auglýsinga- og kynningaráætlanir.
Fjármagna eigin rekstur.
Fylgja hugmynd til framkvæmdar í samvinnu við aðra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Stofna og reka lítið fyrirtæki.
Stýra verkefnum.
Vinna saman í hóp og meta vinnu hvers annars.
Gera viðskiptaáætlun.
Undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni.
Fara í gegnum framleiðsluferli vöru eða þjónustu.
Markaðsetja og selja afurðir sínar.
Greina tækifæri í umhverfinu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: