Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Íslenska, goðafræði og fornbókmenntir
Nemendur lesa norræna goðafræði og kynnast hugmyndaheimi norrænna manna til forna. Þeir vinna ýmis skapandi verkefni úr goðafræðinni þar sem þeir nýta upplýsingatækni við flutning og frágang verkefna. Nemendur kynnast fornum kveðskap og vinna verkefni sem miða að því að…
Skrifleg loka- og skyndipróf, ritunarverkefni og ýmis hópverkefni.
ÍSLE2RM06.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mismunandi tegundum bókmennta og norrænni goðafræði.
Helstu hugtökum í ritgerðasmíð.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Rita texta þar sem nemandinn beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á greinargóðan hátt.
Flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknu málefni.
Lesa bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra.
Vinna á skapandi hátt verkefni í tengslum við námsefnið.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun.
Beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti.
Taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu.
Túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu.
Tengja íslenskuna við fortíð og framtíð.
Tengja íslenska fornmenningu við nútímamenningu.
Skilja eðli og tilgang goðsagna í fornum samfélögum.
Útskýra eðli og þróun tungumála.