ÍSLE2RM06
Íslenska, ritun, málnotkun og tjáning
- Einingar6
Í áfanganum er mikil áhersla lögð á lestur og tjáningu í ræðu og riti. Nemendur lesa eina skáldsögu á önninni. Kenndur er frágangur ritaðs máls og notkun hjálpargagna svo sem handbóka og orðabóka. Mikil áhersla er lögð á tölvunotkun í…
- Í áfanganum er mikil áhersla lögð á lestur og tjáningu í ræðu og riti. Nemendur lesa eina skáldsögu á önninni. Kenndur er frágangur ritaðs máls og notkun hjálpargagna svo sem handbóka og orðabóka. Mikil áhersla er lögð á tölvunotkun í vinnslu og skilum verkefna.
- Nemendur eru þjálfaðir í setningafræði þar sem þeir greina og glöggva sig á skiptingu texta í setningar og setningarliði.
- Gerð er grein fyrir reglum um greinarmerki og nemendur þjálfaðir í notkun þeirra.
- Fjallað verður um sögu máls og menningar frá frumnorrænum tíma til okkar daga. Farið verður yfir sögu íslensks máls og skyldleika við önnur tungumál og helstu hljóð- og málbreytingar íslenskunnar í fyrirlestrum, umræðum og með töflukennslu auk verkefnavinnu og ritunarverkefna.
- Unnin verða ýmis hagnýt verkefni í tengslum við málnotkun; beygingar, orðaforða, orðtök o.fl.
- Stafsetningarupplestrar eru reglulega og nemendur þjálfaðir í stafsetningu.
- Markviss þjálfun í tjáningu er ein kennslustund á viku. Áhersla er lögð á framsögn við ýmiss konar tækifæri. Þá er einnig áhersla lögð á að styrkja sjálfstraust nemenda.
Námsmat er byggt á vinnu nemenda yfir önnina, skyndiprófum, ritunarverkefnum, tjáningarverkefnum, stafsetningu og öðrum verkefnum sem og lokaprófi.
Helstu þáttum íslenskrar málsögu.
Helstu hugtökum setningafræði og reglum um greinarmerki.
Helstu grunnhugtökum í ritgerðasmíð.
Málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli.
Orðaforða sem nægir til að skilja íslenskt nútímamál í ræðu og riti.
Upplýsingatækni sem nýtist honum í ritun og notkun ýmissa hjálpargagna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Nota upplýsingatækni markvisst við frágang ritsmíða.
Nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni.
Skilja og nota algeng stílbrögð í tal- og ritmáli.
Flytja af öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tileknum málefnum.
Nota bókmenntahugtök á ýmsa texta.
Réttritun eftir upplestri.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna tilbrigði í málnotkun.
Styrkja eigin málfærni og nám í erlendum tungumálum, til dæmis með því að nýta málfræðihugtök íslenskunnar.
Beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti og geta nýtt það við hin ýmsu hjálpargögn á netinu og tölvuforrit.
Taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu.
Túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: