Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Bókmenntir á 20. og 21. öld
Nemendur lesa bókmenntatexta frá 20. og 21. öld og kynnast helstu bókmenntastefnum tímabilsins. Textar verða greindir út frá listrænum áherslum, boðskap og því hvernig þeir tengjast listastefnum og íslenskum þjóðfélagshræringum fyrr og nú. Nemendur kynnast hugtökum bókmenntagreiningar og læra að…
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá. Það samanstendur af vinnu annarinnar og skriflegu lokaprófi.
10 fein. í íslensku á 2. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Ritgerðarsmíð og heimildarvinnu.
Helstu einkennum íslensks máls sem nýtast í ræðu og riti, sem og til náms í erlendum tungum.
Orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu.
Mismunandi tegundum bókmennta og nytjatexta, stefnum í íslenskum bókmenntum og helstu bókmenntahugtökum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Rita heimildaritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinagóðan hátt á blæbrigðaríku máli.
Ganga frá hvers kyns texta og nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra til betrumbóta.
Flytja af öryggi og sannfæringarkrafti vel upp byggða ræðu eða ítarlega kynningu á flóknu efni.
Lesa allar gerðir ritaðs máls sér til gagns og gamans, skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið.
Skilja og nota viðeigandi málsnið, stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum.
Beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður í ræðu og riti.
Tjá rökstudda afstöðu við ýmsar kringumstæður, útskýra sjónarmið og taka virkan þátt í málefnalegum umræðum til að komast að vel ígrundaðri niðurstöðu.
Átta sig á samfélagslegum skírskotunum og ná duldum boðskap og hugmyndum úr ræðu og riti.