Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Bókmenntir á 20. og 21. öld
Í áfanganum vinna nemendur með skáldsögur, fræðitexta, ljóð og textabrot eftir helstu skáld 20. og 21. aldar. Lögð er áhersla á fjölbreytta verkefnavinnu þar sem nemendur vinna jafnt hefðbundin ritunarverkefni sem og skapandi verkefni. Nemendur efla hæfni sína við að…
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá. Það samanstendur af vinnu annarinnar og skriflegu lokaprófi.
10 fein. í íslensku á 2. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Ritgerðarsmíð og heimildarvinnu.
Helstu einkennum íslensks máls sem nýtast í ræðu og riti, sem og til náms í erlendum tungum.
Orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu.
Mismunandi tegundum bókmennta og nytjatexta, stefnum í íslenskum bókmenntum og helstu bókmenntahugtökum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Rita heimildaritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinagóðan hátt á blæbrigðaríku máli.
Ganga frá hvers kyns texta og nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra til betrumbóta.
Flytja af öryggi og sannfæringarkrafti vel upp byggða ræðu eða ítarlega kynningu á flóknu efni.
Lesa allar gerðir ritaðs máls sér til gagns og gamans, skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið.
Skilja og nota viðeigandi málsnið, stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum.
Beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður í ræðu og riti.
Tjá rökstudda afstöðu við ýmsar kringumstæður, útskýra sjónarmið og taka virkan þátt í málefnalegum umræðum til að komast að vel ígrundaðri niðurstöðu.
Átta sig á samfélagslegum skírskotunum og ná duldum boðskap og hugmyndum úr ræðu og riti.