Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Lofthjúpurinn og veðurfar
Framhaldsáfangi í jarðfræði þar sem lögð er áhersla á lofthjúp jarðar og þá flóknu ferla sem stjórna veðurfari og loftslagi á jörðinni. Áhersla er lögð á loftslagsbreytingar og áhrif mannsins á þær. Nemendur vinna verkefni, sjálfstætt og í hópum þar…
Lokapróf, hlutapróf, einstaklingsverkefni, paraverkefni, hópverkefni, fyrirlestrar, veggspjöld, myndbönd, ritgerðir, vettvangsferðir, verklegar æfingar.
JARÐ2AJ05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Geislun sólar og rafsegulbylgjum í tengslum við hitastig.
Árstíðum.
Uppbyggingu og samsetningu lofthjúpsins.
Gróðurhúsaáhrifum.
Varmaflutningi í lofthjúpnum.
Myndun úrkomu.
Loft- og hafstraumakerfi jarðar.
Loftslagsbeltum jarðar.
Myndun og áhrifum veðurkerfa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja dægursveiflur í hita og vindstyrk á jörðinni.
Skilja áhrif afstöðu sólar og jarðar á árstíðir.
Skilja áhrif mannsins á hnattrænar loftslagsbreytingar.
Lesa í umhverfi sitt með tilliti til veðurfars og gróðurbelta.
Setja upp, lesa úr og túlka flókin gögn úr töflum og á myndrænu formi.
Nota gögn og heimildir í raunvísindum.
Setja fram og túlka kort og gröf.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Gera sér grein fyrir samhengi í náttúrunni út frá þeim ferlum sem stýra loftslagi á jörðinni.
Meta á gagnrýninn hátt og taka rökstuddar ákvarðanir er varða umgengni í náttúrunni í tengslum við mengun í lofthjúpi jarðar og hafinu.
Geta á sjálfstæðan hátt aflað sér upplýsinga um náttúruvísindalegt efni og metið það á gagnrýninn hátt.
Skilja upplýsingar um veðurfar og loftslag sem koma fram í fjölmiðlum og daglegri umfjöllun.
Meta áhrif mannsins á umhverfi sitt í hnattrænu samhengi.
Gera sér grein fyrir mun á skammtímabreytingum í veðurfari og langtímabreytingum í loftslagi.
Gera sér grein fyrir þeim breytingum sem orðið geta á loftslagi og þeim ógnum sem af þeim stafa.
Kunna skil á mismunandi loftslagsbelti á jörðinni.