Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Námstækni og borgaravitund
Viðfangsefni áfangans er fjölbreytt. Lögð er áhersla á að nemandi geti nýtt sér námsframboð og námsleiðir skólans á sem árangursríkastan hátt. Það felur í sér að nemandi sé fær um að skoða mismunandi námsleiðir, læri árangursríkar aðferðir við nám í…
Mætingar nemenda segja til um hvort áfanginn sé staðinn eða ekki.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Námsframboði og námsleiðum sem leiða til mismunandi útgönguleiða.
Námstækni og mikilvægi markmiðasetninga.
Gildum skólans, hæfni, ábyrgð, virðing, vellíðan.
Gildi heilbrigðs lífstíls.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota námsaðferðir sem skila árangri.
Setja sér markmið sem námsmaður og einstaklingur.
Skoða námsframboð og námsleiðir.
Nýta sér upplýsingar um forvarnir og heilsueflingu.
Bera virðingu fyrir sjálfum sér.
Sýna umburðalyndi, samhygð og virðingu fyrir öðrum.
Taka þátt í jafnréttisumræðu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Bæta eigin vinnubrögð og samstarf við aðra.
Taka ábyrgð á eigin námi.
Nýta styrkleika sína sem best.
Auka færni sína í mannlegum samskiptum.
Bera virðingu fyrir ólíkum skoðunum og viðhorfum.