Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Nýnemafræðsla og velferð
Nemandinn tekur þennan áfanga við upphaf sinnar framhaldsskólagöngu. Nemendur munu fá kynningu á ýmsu sem ætlað er að styðja við þá í leik og starfi, ásamt því að vekja þá til vitundar um mikilvægi hamingju og velfarnaðar í lífinu. Lífsleiknikennari,…
Engin próf eru í áfanganum en ýmis verkefni eru unnin í tengslum við námsefnið. Mætingar og þátttaka nemenda í tímum segja til um hvort áfanginn sé staðinn eða fallinn. Mætingarskylda er í áfangann.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi velferðar og hamingju.
Gildi heilbrigðs líferni.
Gildum skólans; hæfni, ábyrgð, virðing, vellíðan.
Mikilvægi þess að leggja rækt við hugann.
Mikilvægi þess að hafa trú á eigin getu og setja sér markmið.
Styrkleikaþjálfun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Tileinka sér jákvæða hugsun og vera meðvitaður um gildi jákvæðra tilfinninga.
Að nýta sér upplýsingar um forvarnir og heilsueflingu.
Að setja sér markmið sem einstaklingur.
Að sýna umburðarlyndi, samhygð og bera virðingu fyrir öðrum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Bera ábyrgð á eigin velferð og farsæld – að blómstra.
Nýta styrkleika sína sem best.
Auka færni sína í mannlegum samskiptum.
Bera virðingu fyrir ólíkum skoðunum, tilfinningum og viðhorfum.
Bera virðingu fyrir sjálfum sér og tilfinningum sínum.
Rækta sjálfan sig t.d. með því að tileinka sér núvitund og hugleiðslu.