LIGR2LL05
Leiklist
- Einingar5
Í áfanganum er farið í helstu hugtök innan leikhúsfræðanna. Nemendur kynnast grunnverkfærum (body and mind) leikarans við túlkun og áhersla er lögð á mikilvægi ímyndunaraflsins við persónusköpun. Nemendur gera æfingar er tengjast vinnu leikarans með ímyndundaraflið til að leysa hin…
- Í áfanganum er farið í helstu hugtök innan leikhúsfræðanna.
- Nemendur kynnast grunnverkfærum (body and mind) leikarans við túlkun og áhersla er lögð á mikilvægi ímyndunaraflsins við persónusköpun.
- Nemendur gera æfingar er tengjast vinnu leikarans með ímyndundaraflið til að leysa hin ýmsu verkefni.
- Þeir rannsaka hvað þarf til að gera orð á blaði leikbær ásamt því hvernig unnið er með textagreiningu (prosework).
- Nemendur fá tækifæri til að takast sjálfir á við verkefnin með beinni þátttöku sem og að fylgjast með samnemendum kljást við verkefnin.
- Nemendur undirbúa verklegar æfingar, sjálfstætt eða með öðrum, sem flutt eru í tímum.
- Töfrar leikhússins. Farið verður í heimsókn í leikhúsin og fá nemendur að kynnast ólíkum störfum innan þess. Einnig verður haldin samlestur í tíma, á verki sem sýnt er í leikhúsinu það leikárið, þar sem nemendur fá að spreyta sig og að samlestri loknum verður farin hópferð í leikhús á þá sýningu.
- Mikil áhersla er lögð á virkni nemenda og þátttöku í kennslustundum.
Byggir á ástundun, virkni og framförum nemenda í tímum sem og verkefnum sem unnin eru yfir önnina.
Helstu hugtökum leikhúsfræðanna.
Ólíkum nálgunum á listformið.
Ákveðnum þáttum við textagreiningu.
Möguleikum leiklistar.
Mikilvægi hlustunar við sköpun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Takast á við fyrstu skref leikarans við persónusköpun.
Skapa leikbærar kringumstæður.
Nota hugtök leikhúsfræðanna við réttar aðstæður.
Koma nokkurn veginn óheftur fram fyrir öðrum.
Tjá sig um leikhús og leikverk.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Fjalla um leiklist.
Setja fram röksemdir fyrir skoðunum sínum í tengslum við leikhús og nota til þess viðeigandi hugtök.
Beita gagnrýnni hugsun á listformið.
Gera sér grein fyrir tilgangi og mikilvægi leiklistar.
Nýta leiklist í eigin framkomu.
Efla eigin sjálfsmynd og trú á eigin getu.
Virkja ímyndunarafl og efla skapandi hugsun.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: