Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Verslunarréttur
Þessi áfangi er framhald af LÖGF2GA03 og áfram verður fjallað um þær réttarreglur sem gilda í verslun og viðskiptum. Kröfuréttur verðru til umfjöllunar, þar með talið reglur sem gilda um viðskiptabréf, veðsetningar og vanskil. Fjallað verður um félagaform í atvinnurekstri,…
Þessi áfangi er framhald af LÖGF2GA03 og áfram verður fjallað um þær réttarreglur sem gilda í verslun og viðskiptum. Kröfuréttur verðru til umfjöllunar, þar með talið reglur sem gilda um viðskiptabréf, veðsetningar og vanskil. Fjallað verður um félagaform í atvinnurekstri, sér í lagi hlutafélög og einkahlutafélög. Skattar á atvinnurekstur verða teknir fyrir, fjallað um aðila vinnumarkaðarins, réttindi þeirra og skyldur og um lífeyrissjóði. Þá er fjallað um reglur skaðabótarréttarins og vátryggingar í atvinnurekstri.
LÖGF2GA03.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu undirstöðuatriðum kröfuréttar og viðskiptabréfareglum.
Grundvallaratriðum er varða veðrétt, vexti og verðtryggingu.
Afleiðingum vanskila.
Ólíkum félagaformum og helstu reglum sem gilda um hlutafélög og einkahlutafélög.
Þekkja helstu skatta sem lagðir eru á atvinnurekstur.
Vinnumarkaðnum, gildi kjarasamninga og starfsemi stéttafélaga og félaga vinnuveitenda.
Réttindum og skyldum aðila vinnumarkaðarins.
Þeim skaðabótareglum sem huga þarf að í atvinnurekstri.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita ýmsum lykilhugtökum lögfræðinnar, sér í lagi er varða verslun og viðskipti.
Skilja meginreglur samningaréttarins, þar með talið hæfi til samningsgerðar.
Átta sig á mögulegum anmörkum samninga sem geta valdið því að þeir verði ógildir.
Skilja þær meginreglur sem gilda um skuldabréf og ábyrgðir.
Átta sig á þeim meginreglum er gilda um vanskil, vexti og verðtryggingu.
Þekkja þær meginrelgur er gilda um bókhald félaga.
Standa að réttum skattskilum lögaðila.
Skilja þær meginreglur sem gilda á vinnumarkaði, um vinnutíma, yfirvinnu, orlof o.s.frv.
Skilja inntak vinnuveitendaábyrgðar og annarra skaðabótareglna.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Útbúa einfalda samninga og meta hæfi manna til samningagerðar.
Semja umboðsskjöl.
Útbúa samningsskilmála.
Standa að innheimtu krafna.
Stofna hlutafélag eða einkahlutafélag og halda aðalfund, hluthafafund og stjórnarfund í slíku félagi.
Fylgja ákvæðum kjarasamnings.
Standa að ráðningu starfsmanns og uppsögn.
Forðast mögulegt tjón á vinnustað sem valdið getur skaðabótaábyrgð vinnuveitanda.