LOKA2FN07
Lokaverkefni fagnáms verslunar og þjónustu
- Einingar7
Áfanginn er lokaáfangi námsins þar sem markmiðið er að nemandi samþætti nám sitt og þekkingu á vinnustað. Í áfanganum vinna nemendur verkefni sem felur í sér samþættingu þeirra þekkingar og færni sem nemandinn hefur aflað sér í námi sínu bæði…
Áfanginn er lokaáfangi námsins þar sem markmiðið er að nemandi samþætti nám sitt og þekkingu á vinnustað. Í áfanganum vinna nemendur verkefni sem felur í sér samþættingu þeirra þekkingar og færni sem nemandinn hefur aflað sér í námi sínu bæði í bóklegum áföngum sem og vinnustaðanámi. Í lokaverkefninu ígrunda nemendur vel vinnustað sinn og finni tækifæri sem felast innan fyrirtækisins í nýsköpun eða þróun á vöru og/eða þjónustu. Nemendur nýta alhliða þekkingu sína, úr námi og starfi, til útfærslu hugmyndar sinnar. Áhersla er lögð á að nemendur tengi hugmynd sína við hugtakið sjálfbærni og samspili þess við samfélag, umhverfi og stefnu vinnustaðar. Verkefnið getur verið einstaklingsverkefni sem og paraverkefni. Nemandi velur sér viðfangsefni og skipuleggur í samráði við kennara sinn og leiðbeinanda á vinnustaðnum. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, skapandi hugmyndavinnu og frumkvöðlavitund. Lokaverkefnum lýkur með kynningu eða sýningu.
Áfanginn er símatsáfangi.
Sjálfstæðri og markvissri vinnu við að þróa eigin hugmyndir á sjálfbæran og skapandi hátt.
Hvernig beitt er fjölbreyttum aðferðum og faglegum vinnubrögðum við hugmyndavinnu.
Mikilvægi áætlanagerðar og tímastjórnunar.
Mikilvægi gagnrýninnar ígrundunar til eigin verka og vinnustaðarins.
Sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum.
Hvernig verkáætlun er sett upp og henni framfylgt innan ákveðins tímaramma.
Mikilvægi samvinnu og samstarfs mikilvægi hugmyndavinnu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Vinna markvisst frá hugmynd til afurðar.
Útskýra hugmyndir sínar, áætlanir og vinnuferli.
Velja aðferðir og vinnubrögð sem henta verkefninu.
Kynna eigin niðurstöður fyrir öðrum.
Ræða niðurstöður sínar á gagnrýndan hátt.
Sýna frumkvæði og skapandi nálgun.
Beita viðeigandi aðferðum við útfærslu verkefnisins.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Greina möguleika nýsköpunar og þróunar á vinnustað.
Nýta þekkingu sína til að taka sjálfstæðar ákvarðanir í hugmyndavinnu og útfærslu með sjálfbærni og sköpun að leiðarljósi.
Fjalla um og rökstyðja eigin hugmynd og vinnubrögð.
Þróa hugmyndir og stýra verkefnum.
Greina, tjá sig um og meta eigin verkefni og annarra af þekkingu, víðsýni og virðingu.
Átta sig á viðri verkefnisins og menntunar sinnar fyrri samfélag og atvinnulíf.
Efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína.
Beita skapandi og lausnamiðaðri hugsun við nám og störf.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: