LOKA3LS05
Listasmiðjan
- Einingar5
Áfanginn er unninn á síðasta námsári. Nemandi velur sér viðfangsefni og skipuleggur í samráði við leiðbeinanda. Hægt er að útfæra verkefnin á ýmsan hátt, s.s. í formi myndverks, gjörnings, leikþáttar, sýningar. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og skapandi vinnubrögð.…
- Áfanginn er unninn á síðasta námsári.
- Nemandi velur sér viðfangsefni og skipuleggur í samráði við leiðbeinanda.
- Hægt er að útfæra verkefnin á ýmsan hátt, s.s. í formi myndverks, gjörnings, leikþáttar, sýningar.
- Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og skapandi vinnubrögð. Nemendur setja sér markmið og bera ábyrgð á því að skipuleggja vinnu sína.
- Gert er ráð fyrir að nemandi velji efni tengt sínu sviði . Afrakstur allra lokaverkefna er kynnt í málstofu í lok annar sem er opin fyrir nærsamfélagið.
- Áfanginn gefur möguleika á þverfaglegu samstarfi.
- Miðað er við að nemendur vinni lokaáfangann sem einstaklingsverkefni þótt þeir geti óskað eftir að gera það tveir og tveir saman.
- Hafi nemendur hug á að vinna í fjölmennari hópum þarf að rökstyðja það sérstaklega og lýsa fyrirfram hlutverki og vinnuframlagi hvers og eins.
- Með áfanganum er lögð áhersla á að virkja sköpunarkraft nemenda og skapa námsvettvang þar sem tækifæri gefst fyrir nemendur til að taka frumkvæði og ábyrgð.
- Með áfanga sem þessum verða nemendur sjálfstæðari, virkari og þar með ábyrgari einstaklingar.
Námsmat byggir á ástundun nemenda og virkni í tímum sem og lokaverkefni í áfanganum sem er frá hugmynd til afurðar . Nemendur skila af sér skýrslu sem inniheldur ferli vinnunnar
Forkröfur að nemandi hafi lokið a.m.k. 10 einingum í listgreinum, hafi þekkingu á listasögu ásamt menningarfræði þar sem fjallað er um þátt lista í menningarlegu samhengi.
Mikilvægi gagnrýnnar og skapandi lausnarhugsunar.
Hugsunarferlinu frá hugmynd til listrænnar sköpunar, eigin sköpunarkrafti.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Tjá sig á skýran, ábyrgan og gagnrýninn hátt.
Skapa og þróa verk út frá gefnum forsendum, frá frumhugmynd til endanlegrar afurðar í leikverki, prótótýpu eða listaverki.
Skipuleggja verkefni með ábyrgum og sjálfstæðum hætti.
Sýna frumkvæði og skapandi nálgun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Þróa hugmyndir og sýna sjálfstæði, áræðni og innsæi við útfærslu þeirra og túlkun.
Greina, tjá sig um og meta eigin verkefni og annarra af þekkingu, víðsýni og virðingu.
Standa að sýningu/viðburði og miðla þar verkefnum sínum.
Sýna ábyrgð og frumkvæði og beita gagnrýnni hugsun.
Taka þátt í umræðum og koma skoðunum sínum og hugsunum á framfæri með fjölbreyttum aðferðum.
Miðla eigin hugmyndum og skoðunum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: