Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Hugtök og notkun þeirra
Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni markaðsfræðinnar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á gildi markaðsstarfs fyrir neytendur, fyrirtæki og samfélagið í heild. Leitast er við að nemendur tileinki sér markaðslega hugsun. Fjallað er um söluráðana og samval þeirra…
Námsmat samanstendur af verkefnum og kaflaprófum á önninni sem og skriflegu lokaprófi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Tilgangi og hugmyndafræði markaðsfræðinnar og þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélag.
Hugsanlegum neikvæðum afleiðingum sem markaðssetning getur haft fyrir einstaklinga og samfélag.
Söluráðunum; vara, verð, kynning og dreifing.
Helstu hugmyndum um kaupvenjur á neytendamarkaði og fyrirtækjamarkaði.
Markhópagreiningu, markaðsmiðun og markaðshlutun.
Helstu hugmyndum er varða vörur og vöruþróun.
Mörkun og þróun vörumerkja.
Helstu atriðum varðandi markaðssetningu þjónustu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita grunnhugtökum markaðsfræðinnar við verkefnavinnu.
Ræða hugmyndir markaðsfræðinnar.
Vinna saman í hóp.
Koma þekkingu sinni varðandi markaðstengd viðfangsefni á framfæri.
Geta leyst raunhæf verkefni í markaðsfræði.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Beita hugtökum markaðsfræðinnar í starfi.
Meta siðfræðileg álitamál sem varða markaðssetningu.
Heimfæra hugmyndir markaðsfræðinnar á eigið líf.
Nýta sér hæfni sína til frekara náms í markaðsfræði.
Nýta hæfni sína til starfa við einföld markaðsmál.
Gera makhópagreiningu fyrir einstakar vörur.
Miðla vitneskju sinni um markaðsmál til annarra.