Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Rekstrarhagfræði, markaðsform og teygni
Kennslan er byggð á fyrirlestrum, umræðum og dæmatímum. Lögð er áhersla á útreikning dæma og túlkun niðurstöðu þeirra, gerð grafa og greiningu þeirra. Einnig að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð og færni til að setja fram eigin niðurstöður á læsilegan…
Í lok áfangans er skriflegt lokapróf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, verkefnum og ástundun nemandans á önninni.
REKH1GR05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hlutverki líkanasmíði í hagfræði.
Teygnihugtakinu almennt og helstu tegundum teygni.
Framleiðslu og afkastalögmálinu.
Kostnaðargreiningu og mismunandi kostnaðarhugtökum.
Mismunandi markaðsformum: einokun, fákeppni, einkasölusamkeppni, verðleiðsögn, fullkomin samkeppni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Fást við teygniútreikninga og túlkun þeirra.
Reikna dæmi tengd framleiðsluútreikningum.
Reikna 0-punkta.
Reikna hagkvæmasta verð og magn miðað við mismunandi markaðsform, markaðsaðstæður og kostnaðarskipan.
Reikna og sýna fram á hvernig auka má hagnað fyrirtækis með verðaðgreiningu.
Nota diffrun, þegar við á, við lausn hámörkunar- og lágmörkunarvandamála.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Greina á hvaða markaði tiltekið fyrirtæki starfar og geti metið þau markaðsöfl, leikreglur og samkeppni sem skýra verðstefnu og hegðun þess á markaði.
Túlka og greina, á gagnrýninn hátt, niðurstöður rekstrarhagfræðilegra útreikninga.
Meta hvenær fyrirtæki á að beita verðaðgreiningu og hvað býr að baki verðstefnunni.
Nota stærðfræði og upplýsingatækni við lausn hagfræðilegra viðfangsefna.
Taka þátt í hópavinnu við úrlausn rekstrarhagfræðilegra vandamála á gagnrýninn og jákvæðan hátt.