Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Mannkynssaga 1789-2000
Mannkynssaga frá frönsku byltingunni til nútímans. Farið verður í afleiðingar frönsku byltingarinnar, Napóleonsstyrjaldirnar og áhrif þeirra, sögu 19. aldarinnar og iðnbyltinguna, þróun stjórnarfars og breytingar sem verða við stofnun nýrra ríkja í öðrum heimsálfum. Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar.…
Námsmat byggir á lokaprófi og verkefnum, smærri og stærri sem nemendur vinna yfir önnina.
SAGA1FM05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Nokkrum afmörkuðum skeiðum sögunnar með tilliti til ýmissa sviða hennar svo sem: menningar, hugarfars, stjórnmála, einstaklinga, samfélags, tækni og vísinda.
Framþróun í okkar heimshluta síðustu aldir og tengslum hans við aðrar heimsálfur og helstu þáttum í sögu tuttugustu aldar.
Fjölbreytileika heimilda.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Koma á framfæri þekkingu sinni og skilningi á sögulegri þekkingu.
Vinna sjálfstætt sem og í hópum að gerð fjölbreyttra heimildaverkefna.
Lesa og túlka texta, kort, töflur, gröf og myndir frá mismunandi tímaskeiðum.
Meta gildi ólíkra heimilda.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Velta fyrir sér ólíkum sögulegum skýringum, taka þátt í skoðanaskiptum og meta ólík sjónarhorn sögulegra álitamála.
Meta söguleg fyrirbæri út frá forsendum hvers tíma og sjá tengsl þeirra við nútíma.
Rýna í heimildir, vinna úr þeim og leggja á þær gagnrýnið mat.
Beita upplýsingatækni í þekkingarleit sinni.
Meta gildi vettvangsskoðunar út frá skynrænum upplifunum.
Njóta lista, menningar og samfélagsumræðu og tengja það sögulegri þekkingu sinni.