Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Menningarsaga og saga mannréttindabaráttu á 20. og 21. öld
Áfanginn fjallar um sögu síðustu áratuga ásamt því sem farið er í valda þætti mannréttindabaráttu og atburða líðandi stundar. Mikil áhersla er lögð á virkni nemenda og fjölbreytni í gagnanotkun og framsetningu. Verkefnin felast í rituðu máli (skýrslugerð) og skriflegum…
Námsmat er samsett úr ýmsum þáttum, bæði verkefnum og prófum. Nánar er kveðið á um námsmatið í námsáætlun áfangans.
SAGA3MS05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Völdum köflum mannréttindabaráttu á 20. öld.
Framþróun í okkar heimshluta síðustu áratugi og tengslum hans við aðrar heimsálfur og helstu þáttum í sögu tuttugustu aldar og tuttugustu og fyrstu aldarinnar.
Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til frekara náms í greininni.
Nauðsyn faglegrar og fræðilegrar umræðu í námi og starfi.
Þeim hugmyndum sem mótað hafa viðhorf fólks til jafnréttis, lýðræðis og mannréttinda.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Greina fjölbreytt orsakasamhengi.
Taka virkan þátt í samfélagslegri umræðu.
Skipuleggja tíma sinn á raunhæfan hátt.
Vinna sjálfstætt við skapandi rannsóknarvinnu.
Skrifa fræðilegan texta.
Beita upplýsingatækni við þekkingarleit.
Beita öguðum, faglegum og siðferðilega réttmætum vinnubrögðum.
Beita gagnrýnni hugsun.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Meta heimildir og rannsóknagögn á gagnrýninn hátt og setja fram rökstuddar tilgátur um viðfangsefni.
Setja fram nákvæmar röksemdir fyrir skoðunum sínum.
Beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám.
Nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt.
Beita því verklagi sem hæfir rannsókn eða lausn verkefna og álitaefna hverju sinni.
Setja fram rökstuddar hugmyndir um viðfangsefni greinar.
Móta og skilgreina fagleg viðhorf sín til viðfangsefna viðkomandi greinar.
Hefja háskólanám í félags-, mann- og hugvísindum.