Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Grunnur í sálfræði
Áfanginn er grunnáfangi í sálfræði. Nemendur kynnast fræðigreininni sálfræði, eðli hennar, sögu og þróun. Helstu sálfræðistefnur eru kynntar og grunnhugtök greinarinnar skýrð. Starfssvið sálfræðinga verður skoðað sem og hagnýtt gildi sálfræði í daglegu lífi svo sem við nám og mótun…
Námsmat er tvíþætt, gefin er vinnueinkunn sem gildir til helminga á móti lokaprófseinkunn.
FÉLA1IS05 (FÉL103).
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þróun sálfræðinnar sem fræðigreinar.
Grundvallarkenningum sálfræðinnar.
Hagnýtu gildi sálfræðinnar í daglegu lífi.
Helstu leiðum sálfræðinnar til að útskýra hugsun, hegðun og tilfinningar einstaklinga.
Helstu mótunaröflum einstaklinga og hópa.
Vísindalegum vinnubrögðum greinarinnar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa og skilja helstu hugmyndastefnur sálfræðinnar.
Beita hugtökum sálfræðinnar.
Skoða eigin hegðun, hugsun og tilfinningar út frá hugmyndum sálfræðinnar.
Skoða hegðun, hugsun og tilfinningar annarra út frá hugmyndum sálfræðinnar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Gera sér grein fyrir mótandi áhrifum umhverfisins á einstaklinginn.
Skilja samspil hegðunar, hugsunar og tilfinninga.
Geta yfirfært sálfræðilega þekkingu sína yfir á eigin sjálfsmynd.
Geta tjáð sig á skipulagðan og gagnrýninn máta um sálfræðileg efni.
Framkvæma einfalda rannsókn og rýna í helstu niðurstöður.