Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Byrjendaáfangi í spænsku
Nemendur notast við námsbækur, gera hlustunar- og munnlegar æfingar. Nemendur vinna ýmis verkefni (munnleg, hlustunar og skrifleg) með og án hjálpar upplýsingartækni. Verkefnin eru ýmist einstaklings- eða hópverkefni. Lögð er áhersla á frumkvæði nemenda og að þeir fylgist með eigin…
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Almennum orðaforða í samræmi við hæfniviðmið áfangans.
Nokkrum helstu grundvallarþáttum málkerfisins.
Menningu, samskiptavenjum og siðum í spænskumælandi löndum.
Uppbyggingu einfaldra texta.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt.
Lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða.
Taka þátt í einföldum samræðum.
Skrifa einfaldan texta um þekkt efni eða áhugasvið.
Beita helstu reglum um málnotkun í ræðu og riti.
Nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Gefa og skilja einfaldar upplýsingar í rituðu og mæltu máli.
Skilja meginatriði einfaldra texta.
Tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um efni sem hann þekkir.
Takast á við einfaldar aðstæður í almennum samskiptum.
Tileinka sér jákvætt viðhorf til námsins.
Geta metið eigið vinnuframlag og stöðu.
Geta nýtt upplýsingatækni við námið.
Geta tekið ábyrgð á eigin námi.