Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Spænska D, fjórði áfangi
Haldið verður áfram þaðan sem frá var horfið í áfanganum á undan. Lokið verður yfirferð allra helstu grundvallaratriða spænskrar málfræði. Nemendur verða áfram æfðir í hlustun og ritun og meiri áhersla verður lögð á lesskilning. Nemendur munu rita texta sem…
Í lok áfangans er skriflegt og munnlegt próf sem gildir á móti ýmis konar vinnu; greinaskrifum, örsögum, stuttmyndum og leikritum. Í lok hvers kafla munu nemendur gera gagnvirkar æfingar á kennsluvefnum Moodle og úr vinnubók. Skriflega lokaprófið samanstendur af: ritun, lesskilningi, málfræði- og orðaforðaæfingum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans.
Helstu grundvallarþáttum í uppbyggingu málkerfisins.
Ýmsum almennum aðstæðum í daglegu lífi, menningu og siðum á Spáni og í Rómönsku Ameríku og í öðrum spænskumælandi löndum.
Útbreiðslu spænskunnar ásamt ólíkum venjum, siðum, staðháttum og menningu spænskumælandi landa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja talað mál um kunnugleg efni og greina aðalatriði í fjöl- og myndmiðlum þegar fjallað er um afmörkuð málefni.
Lesa margskonar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.
Taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á.
Skrifa styttri samfellda texta um efni sem hann þekkir, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir og nota viðeigandi málfar.
Nota upplýsingatækni og hjálpargögn.