Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Hnitakerfi og jöfnur
Í áfanganum er mest unnið með margliður, sérstaklega fyrsta- og annars stigs margliður og hnitakerfið. Einnig er farið í mengi og grunnaðgerðir þeirra. Auk þess er fallahugtakið kynnt. Kennslan fer jöfnum höndum fram með fyrirlestrum kennara þar sem nýtt efni…
Próf er í áfanganum í annarlok og frammistaða nemenda á önninni þ.m.t. í skyndiprófum og örprófum, heimadæmum og ástundun kemur einnig inn í lokaeinkunn
STÆR2ÞA05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mengjum og grunnaðgerðum mengja.
Talnalínunni, algildi og biltáknum.
Rétthyrndu hnitakerfi í sléttum fleti.
Jöfnu línu, annars stigs jöfnum, algildisjöfnum, línulegum og annars stigs ójöfnum.
Margliðum: skilgreining, deiling, núllstöðvar og formerki.
Jöfnu fleygboga.
Ójöfnum sem afmarka svæði í hnitakerfi.
Hugtakinu falli og einföldum aðgerðum á föllum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja framsetningu stærðfræðilegs námsefnis.
Tjá sig um aðferðir sínar bæði í rituðu og mæltu máli og vera læs á texta sem inniheldur stærðfræðitákn og hugtök.
Vinna með grunnaðgerðir mengja.
Meðhöndla talnamengin N,Z,Q,R.
Finna og vinna með jöfnu beinnar línu.
Finna lausnir annars stigs jafna og ójafna.
Vinna í rétthyrndu hnitakerfi í sléttum fleti.
Nota vísindalegar reiknivélar og einföld stærðfræðiforrit.
Nota fallahugtakið í daglegu lífi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra af virðingu og umburðarlyndi án fordóma.
Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega í mæltu máli svo og myndrænt.
Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
Hagnýta sér stærðfræðilega þekkingu til ákvarðanatöku í sértækum verkefnum.
Beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna.
Beita skipulegum aðferðum við að leysa verkefni og setja upp jöfnur.
Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina.
Nota lausnir verkefna við val, samanburð og ákvarðanir.
Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og í texta og sanna ákveðnar reglur.
Beita einföldum samsettum röksemdum.
Greina röksamhengi í röksemdafærslum og ganga úr skugga um hvort þær eru rangar eða ófullkomnar.