Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Margliður og hnitakerfið
Í áfanganum er mest unnið með hnitakerfið. Byrjað er með mengjum og mengjaaðgerðum. Aðgerðir á margliðum s.s. deiling margliða og síðan er unnið sérstaklega með beinu línuna og fleygboga og endað á kynningu á diffrun. Gerðar eru kröfur um að…
Próf er í áfanganum í annarlok og frammistaða nemenda á önninni þ.m.t. í skyndiprófum og örprófum, heimadæmum og ástundun kemur einnig inn í lokaeinkunn.
STÆR2PÞ05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mengjum og grunnaðgerðum mengja.
Talnalínunni, algildi og biltáknum.
Liðun og þáttun margliða.
Rétthyrndu hnitakerfi í sléttum fleti.
Jöfnu línu, annars stigs jöfnum, algildisjöfnum, línulegum og annars stigs ójöfnum.
Margliðum: skilgreining, deiling, núllstöðvar og formerki.
Jöfnu fleygboga.
Merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja að stærðfæðin hefur eigin framsetningarmáta.
Tjá sig um aðferðir sínar bæði í rituðu og mæltu máli og vera læs á texta sem inniheldur stærðfræðitákn og hugtök.
Vinna með grunnaðgerðir mengja.
Kunna að fara með talnamengin N,Z,Q,R.
Finna lausnir annars stigs jafna.
Vinna í rétthyrndu hnitakerfi í sléttum fleti.
Diffra einföld föll.
Nota vísindaleg reikniforrit.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra af virðingu og umburðarlyndi án fordóma.
Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega í mæltu máli og myndrænt.
Vinna á skilmerkilegan hátt með hugtök námsefnisins.
Beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna.
Beita skipulegum aðferðum við að leysa verkefni og setja upp jöfnur.
Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina.
Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og í texta og sanna ákveðnar reglur.
Beita einföldum samsettum röksemdum.