Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Prósentur og þríhyrningar
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og lausnum verkefna og þrauta. Lögð er áhersla á talnareikning, lausn jafna, prósentureikning auk rúmfræði. Nemendur kynnast hornaföllunum í rétthyrndum þríhyrningum.
Grunnskólapróf
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Talnareikningi, forgangsröð aðgerða.
Veldareglum og veldareikningi.
Hlutfallareikningi, prósentureikningi.
Vöxtum og vaxtavöxtum.
Þríhyrningum og hornaföllum.
Jöfnum af fyrsta stigi, tveimur jöfnum með tveimur óþekktum stærðum, óuppsettum jöfnum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita þeim reglum sem tilheyra námsefninu og leysa verkefni og dæmi sem lögð eru fyrir.
Beita reiknireglum í tengslum við heil og brotin veldi.
Setja upp og leysa jöfnur sem innihalda tvær óþekktar stærðir.
Reikna stærð allra horna og hliða í þríhyrningum með notkun hornafalla og öðrum reiknireglum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra.
Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum um þær við aðra og útskýrt hugmyndir sínar.
Beita skipulegum aðferðum við lausnir þrauta úr kunnuglegu samhengi og geta útskýrt aðferðir sínar .
Beita gagnrýninni og skapandi hugsun og sýna áræðni, frumkvæði, innsæi og frumleika við lausnir.
Klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, geta leyst þau og túlkað lausnir.
Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta og beitt einföldum röksemdum.