Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Þríhyrningar og algebra
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og lausnum verkefna og þrauta. Mikil áhersla er lögð á algebru, liðun og þáttun auk velda- og rótareikning. Í rúmfræðinni er sérstaklega fjallað um frumreglur, skilgreiningar og reglur um…
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Jöfnum af fyrsta stigi, tveimur jöfnum með tveimur óþekktum stærðum, óuppsettum jöfnum.
Liðun og þáttun.
Veldareikningi og rótarreglum .
Frumsendum, skilgreiningum og reglum í evklíðskri rúmfræði.
Þríhyrningum og hornaföllum.
Mengjum og mengjaaðgerðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita þeim reglum sem tilheyra námsefninu og leysa verkefni og dæmi sem lögð eru fyrir.
Beita velda- og rótarreglum.
Fylgja eftir sönnunum á stærðfræðireglum.
Setja upp og leysa jöfnur sem innihalda eina óþekkta stærð eða tvær óþekktar stærðir.
Reikna stærð allra horna og hliða í þríhyrningum með notkun hornafalla og annarra reikniregla.
Meðhöndla algebrubrot.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra.
Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum um þær við aðra og útskýra hugmyndir sínar.
Átta sig á tengslum ólíkra aðferða við lausn og framsetningu.
Vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.
Beita skipulegum aðferðum við lausnir þrauta úr kunnuglegu samhengi og geta útskýrt aðferðir sínar.
Beita gagnrýninni og skapandi hugsun og sýna áræðni, frumkvæði, innsæi og frumleika við lausnir.
Klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnir.
Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta og beita einföldum röksemdum .