STÆR2ÞA05

Þríhyrningar og algebra

  • Einingar5

Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og lausnum verkefna og þrauta. Mikil áhersla er lögð á algebru, liðun og þáttun auk velda- og rótareikning. Auk þess er farið ítarlega í prósentureikning. Í rúmfræðinni er sérstaklega…

  • Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og lausnum verkefna og þrauta.
  • Mikil áhersla er lögð á algebru, liðun og þáttun auk velda- og rótareikning.
  • Auk þess er farið ítarlega í prósentureikning.
  • Í rúmfræðinni er sérstaklega fjallað um frumreglur, skilgreiningar og reglur um horn og þríhyrninga og þannig búið til afleiðslukerfi.
  • Nemendur kynnast hornaföllunum í rétthyrndum þríhyrningum.
  • Um bekkjarkennslu er að ræða og fer kennslan að mestu leyti fram í formi fyrirlestra.
  • Nemendur vinna ýmist sjálfstætt, í pörum eða í hópum.

Námsmat er samsett úr vinnueinkunn á grundvelli ástundunar, verkefnavinnu og skyndikannanna auk skriflegs lokaprófs í lok annar.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Liðun og þáttun.

  • Veldareikningi og rótarreglum.

  • Hlutfallareikningi, prósentureikningi, vöxtum og vaxtavöxtum.

  • Frumsendum, skilgreiningum og reglum í evklíðskri rúmfræði.

  • Þríhyrningum og hornaföllum.

  • Jöfnum af fyrsta stigi, tveimur jöfnum með tveimur óþekktum stærðum, óuppsettum jöfnum.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita þeim reglum sem tilheyra námsefninu og leysa verkefni og dæmi sem lögð eru fyrir.

  • Beita velda- og rótarreglum.

  • Fylgja eftir sönnunum á stærðfræðireglum.

  • Setja upp og leysa jöfnur sem innihalda tvær óþekktar stærðir.

  • Reikna stærð allra horna og hliða í þríhyrningum með notkun hornafalla og annarra reikniregla.

  • Meðhöndla algebrubrot.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra.

  • Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum um þær við aðra og útskýra hugmyndir sínar.

  • Átta sig á tengslum ólíkra aðferða við lausn og framsetningu.

  • Vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.

  • Beita skipulegum aðferðum við lausnir þrauta úr kunnuglegu samhengi og geta útskýrt aðferðir sínar.

  • Beita gagnrýninni og skapandi hugsun og sýna áræðni, frumkvæði, innsæi og frumleika við lausnir.

  • Klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnir.

  • Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta og beita einföldum röksemdum.