STÆR3DF05
Diffrun og fallafræði
- Einingar5
Fallahugtakinu eru gerð góð skil svo og ýmsum aðgerðum sem beitt er á föll. Meðal annars eru vísisföll og lograföll kynnt. Markgildishugtakið þ.m.t. einhliða markgildi og óeiginleg markgildi er skilgreint. Einnig hallatala við feril falls, diffurkvóti og diffurreglur. Endað er…
- Fallahugtakinu eru gerð góð skil svo og ýmsum aðgerðum sem beitt er á föll.
- Meðal annars eru vísisföll og lograföll kynnt.
- Markgildishugtakið þ.m.t. einhliða markgildi og óeiginleg markgildi er skilgreint.
- Einnig hallatala við feril falls, diffurkvóti og diffurreglur.
- Endað er á fallagreiningu en í henni felst að finna staðbundin útgildi, einhallabil, sveigju ferils o.fl.
STÆR2VH05 – (STÆ303).
Nokkrum algengum föllum.
Ýmsum hugtökum og reiknireglum tengdum föllum.
Markgildi, samfelldni og aðfellum falla.
Snertli, diffurkvóta og diffurreglum.
Afleiðum algengra falla.
Staðbundnum útgildum og beygjuskilum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Kanna feril falla: finna skilgreiningar- og myndmengi, diffra föll og finna útgildi og beygjuskil, finna aðfellur og rissa upp feril falla.
Skeyta saman föllum og finna andhverfur falla.
Leysa jöfnur með vísis- og lograföllum.
Leiða út afleiður falla út frá skilgreiningu á afleiðu.
Reikna einföld markgildi og ganga úr skugga um hvort fall af einfaldri gerð sé samfellt og/eða diffranlegt .
Nota skilgreiningar til að sýna fram á ákveðna eiginleika falla.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Geta skráð lausnir sínar skipulega og rökstutt þær.
Geta rætt hugmyndir sínar um námsefnið.
Geta skilgreint hugtök námsefnisins með nákvæmum hætti .
Fylgja og skilja röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni .
Rekja sannanir í námsefninu.
Greina hvenær röksemdafærsla teljist fullnægjandi.
Nota skilgreiningar í röksemdafærslum.
Vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.
Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa og túlka lausnina.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: