Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Stærðfræðigreining
Frumsendur rauntalnakerfisins eru kynntar og unnið með þær, samleitni runa og raða skoðuð. Eiginleikar og helstu setningar samfelldra og diffranlegra falla skoðaðar. Farið er í Taylor-margliður/raðir og l´Hopital regluna um markgildi. Lögð er áhersla á nákvæma framsetningu lausna og sannana.…
Í lok annar er skriflegt próf sem gildir til lokaeinkunnar ásamt tímaprófi, heimadæmum, frammistöðu í umræðutímum, kynningu á söguverkefni og stuttri heimildaritgerð.
STÆR5DF05 (Stæ603).
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Samleitni óendanlegra runa og raða.
Frumsendum um svið og röðun.
Taylor-margliðum/röðum.
Mismunandi sannanagerðum.
Helstu reglum samfelldra og diffranlegra falla.
l’Hopital reglunni um markgildi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Sanna með beinni og óbeinni sönnun, með andumhverfu og þrepasönnun.
Beita frumsendum um svið og röðun til að leiða út reiknireglur fyrir rauntalnakerfið.
Leiða út markgildi runa.
Ákvarða hvort raðir séu samleitnar meðal annars með því að beita kvóta- og rótarprófum.
Nota ϵ-δ sönnun til að sýna fram á markgildi falla.
Leiða út helstu reglur samfelldra og diffranlegra falla, t.d. reglur Rolle, Bolzano og milligildisregluna.
Beita reglu l’Hopital og finna Taylorraðir.
Nota Latex til að rita stærðfræðitexta og heimildaritgerðir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Skrá lausnir sínar skipulega og rökstyðja þær.
Ákveða hvaða aðferð hentar best við lausn ákveðinna verkefna.
Geta unnið með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.
Gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna.
Skilja hvað felst í alhæfingu og tilhæfingu.
Beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna.
Fylgja viðamikilli röksemdafærslu.
Greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun.
Byggja upp eigin sannanir.