Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Stjórnun
Farið er yfir grunnhugtök og kenningar í stjórnun. Nemendur fá innsýn inn í heilstu verkefni og hlutverk stjórnenda. Fjallað er um þróun í stjórnunarkenningum og hvernig breytingar í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að sífellt meiri áhersla hefur verið lögð…
Farið er yfir grunnhugtök og kenningar í stjórnun. Nemendur fá innsýn inn í heilstu verkefni og hlutverk stjórnenda. Fjallað er um þróun í stjórnunarkenningum og hvernig breytingar í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að sífellt meiri áhersla hefur verið lögð á stjórnun sem fræðigrein. Nemendum er kynnt mikilvægi stefnumótunar og markmiðssetningar. Viðfangsefni áfangans miða meðal annars að því að undirbúa nemendur fyrir frekara nám í stjórnun, ásamt þátttöku í félags- og atvinnulífi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu hlutverkum stjórnenda.
Sögu stjórnunar og helstu fræðimönnum.
Fyrirtækjamenningu.
Siðferði skipulagsheilda.
Samfélagslegri ábyrgð.
Stefnumótun, áætlanagerð og markmiðssetningu.
Skipulagi fyrirtækja.
Mannauðsstjórnun.
Vali á starfsmönnumm.
Frammistöðu og hvatningu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita grunnhugtökum stjórnunar við verkefnavinnu.
Vinna raunhæf verkefni um stjórnendur í atvinnulífinu.
Vinna saman í hóp.
Koma þekkingu sinni á framfæri.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Beita hugtökum og aðferðum stjórnunar í starfi.
Meta siðferðileg álitamál sem verða stjórnun.
Heimfæra hugmyndir stjórnunar á eigið líf.
Nýta sér hæfni sína til frekara náms.
Nýta hæfni sína til þess að taka þátt í atvinnulífinu.
Skilja helstu skipurit.
Vera hæfari til að takast á við þá áskorun að taka virkan þátt í atvinnulífi þjóðarinnar.
Geta tekið einfaldar stjórnunarákvarðanir.