Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Stjórnun, hugtök og kenningar
Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni stjórnunar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á mikilvægi stjórnunar, fyrir fyrirtæki og samfélagið í heild. Nemendur fá innsýn í helstu verkefni og hlutverk stjórnenda. Fjallað er um þróun í stjórnunarkenningum og hvernig…
Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti verkefnum, skyndiprófi og ástundun nemandans á önninni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu hlutverkum stjórnunar.
Leiðtogahæfni.
Sögu stjórnunar sem fræðigreinar og helstu fræðimönnum.
Fyrirtækjamenningu.
Siðferði skipulagsheilda.
Samfélagslegri ábyrgð skipulagsheilda.
Umhverfi skipulagsheilda.
Breytingastjórnun.
Stefnumótun, áætlanagerð og markmiðssetningu.
Skipulagi fyrirtækja.
Mannauðsstjórnun.
Ráðningarferlinu.
Þjálfun og umbun starfsmanna.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita grunnhugtökum stjórnunar við verkefnavinnu.
Ræða helstu kenningar og aðferðir stjórnunar.
Vinna raunhæf verkefni um stjórnendur í atvinnulífinu.
Vinna saman í hóp.
Koma þekkingu sinni á framfæri.
Útbúa skipurit.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Beita hugtökum og aðferðum stjórnunar í starfi.
Meta siðferðileg álitamál sem varða stjórnun.
Heimfæra hugmyndir stjórnunar á eigið líf.
Nýta sér hæfni sína til frekara náms.
Nýta hæfni sína til þess að taka þátt í atvinnulífinu.
Vinna raunhæf verkefni sem stjórnandi.
Búa yfir færni í að skilgreina mismunandi stjórnunarstíla.
Skilja helstu skipurit.
Vera hæfari til að takast á við þá áskorun að taka virkan þátt í atvinnulífi þjóðarinnar.
Hafa það sem þarf til að bera til að bæta og efla atvinnulíf landsmanna í framtíðinni.
Geta tekið einfaldar stjórnunarákvarðanir.